Eins og undanfarnar vikur, siglir Herjólfur til Þorlákshafnar í dag og mun halda því áfram fram á mánudag í það minnsta. Ekki hefur verið siglt til Landeyjahafnar síðan 7. nóvember síðastliðinn en unnið er að dýpkunarframkvæmdum við höfnina og eru bæði Skandia og Perland að störfum þar.