Risa flugeldabingó Handknattleiksdeildar ÍBV – íþróttafélags verður íkvöld, fimmtudaginn 29. des. kl. 20:11 í Höllinni. Spilaðar verða 10 umferðir en vinningarnir verða glæsilegri enn nokkru sinni áður. Hinir frábæru bingóstjórar undanfarinna ára fara á kostum að venju. Fjölmennum og styrkjum íþróttastarfið í Vestmannaeyjum.