„Við erum að undirbúa tónleikana Bjartar vonir vakna af fullum krafti og stefnum á að telja í fyrsta lag klukkan átta á sunnudagskvöldið. Þetta er stærsta verkefni sem ég hef komið að og hingað koma alls hátt í 30 manns í tengslum við tónleikana,“ sagði Bjarni Ólafur Guðmundsson, framkvæmdastjóri Hallarinnar sem er þó tvístígandi því lítið hefur selst af miðum í forsölu.