Hin unga og efnilega íþróttakona Rakel Hlynsdóttir hefur verið valin í íslenska kvennalandsliðið skipað leikmönnum 20 ára og yngri. Liðið mun leika gegn FH á sunnudaginn en alls voru 18 leikmen valdir í hópinn að þessu sinni. Í apríl mun liðið svo fara til Tyrklands þar sem fram fer undanriðill fyrir næsta stórmót.