Lið Framhaldsskólans í Vestmannaeyjum steinlá þegar það mætti Kvennaskólanum í Reykjavík í gærkvöldi í spurningakeppninni Gettu betur á Rás 2. Lokatölur urðu 30:5 og eru Eyjamenn því úr leik þetta árið. Kvennaskólinn komst um leið í sjónvarpshluta keppninnar.