Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra hefur boðað fjölmiðla til fundar í ráðuneytinu í fyrramálið, klukkan 11:00 en fundarefnið er Landeyjahöfn og ferjusiglingar milli lands og Eyja. Auk ráðherra og sérfræðinga ráðuneytisins, verða á fundinum fulltrúar Vestmannaeyjabæjar, Siglingastofnunar og Vegagerðarinnar.