Í fréttatilkynningu frá Elliða Vignissyni, bæjarstjóra og Guðlaugi Friðþórssyni, bæjarfulltrúa eftir fundinn kemur fram að heimamenn hafi velt upp þeim möguleika að fá öflugan farþegabát, með fullt haffæri á tilgreindu hafsvæði, til að veita þjónustu með föstum ferðum í Landeyjahöfn á þeim tíma sem Herjólfur getur eingöngu siglt í Þorlákshöfn, vegna dýpis eða annarra vandamála.