Hanna Birna Jóhannsdóttir hefur opnað blómabúð, þar sem Blómaskerið var áður til húsa við Bárustíg 11 en verslunin hefur fengið nafnið Blómabúð Hönnu. Hanna hefur um áratugaskeið verið viðloðandi blómaskreytingar og starfaði m.a. lengi með Imbu Johnsen, í blómaverslun hennar.