Karlalið ÍBV í knattspyrnu lék tvo leiki um síðustu helgi. Á laugardaginn lék liðið í Lengjubikarnum gegn ÍA en leikurinn fór fram á Akranesi. Leiknum lauk með 2:1 sigri ÍA en mark ÍBV gerði Víðir Þorvarðarson. Seinni leikurinn var svo daginn eftir, á sunnudag en þá lék ÍBV gegn 3. deildarliðinu KV eða Knattspyrnufélagi Vesturbæjar. Leiknum lauk með sigri ÍBV 3:4 en mörk ÍBV gerðu þeir Aaron Spear, Friðrik Már SIgurðsson, Björn Axel Guðjónsson og Kjartan Guðjónsson.