Á morgun, klukkan 9:00 hefst keppnin Hressómeistarinn 2012 í líkamsræktarstöðinni Hressó. Massarnir, sem er hópur vaskra og limafagurra sveina sem æfa í stöðinni, hafa verið allt að því einráðir í karlakeppninni og telja sigurinn nokkuð vísan í ár. Venjulegu fólki er velkomið að koma og fylgjast með Mössunum og sérstaka athygli er vakin á því að Huginn Helgason er kannski á lausu, eða eins og hann sagði sjálfur: It’s complicated!”.
“