Á bæjarstjórnarfundi í gær, kynnti Elliði Vignisson, bæjarstjóri, niðurstöðu ársreiknings Vestmannaeyjabæjar fyrir árið 2011. Þar kom fram að rekstrarafkoma bæjarins varð 430 milljónir króna og eigið fé var 4 milljarðar og 750 þúsund. Var ársreikningurinn samþykktir 7-0 í bæjarstjórn.