Ársþing Íþróttabandalags Vestmannaeyja fyrir árið 2011, verður haldið í Týsheimilinu í kvöld, fimmtudag, kl. 20.00. Auk hefðbundinna starfa ársþinga, verður ÍBV íþróttafélag, útnefnt Fyrirmyndarfélag ÍSÍ 2012. Slíka útnefningu fá aðeins þau aðildarfélög ÍSÍ, sem uppfylla ákveðnar gæðakröfur sambandsins.