Leikfélag Vestmannaeyja frumsýnir í dag barnaleikritið Galdrakarlinn í Oz í leikstjórn Zindra Freys Ragnarssonar. Leikritið er einstakt að því leytinu að það eru einungis börn á aldrinum 10 til 12 ára sem leika en það er í fyrsta sinn sem félagið setur slíka sýningu á fót.