Nú styttist í hið árlega Lundaball en ballið verður föstudaginn 28. september. Í ár eru það Bjarnareyingar sem halda ballið. Búast má við miklu fjöri enda er ballið alltaf vel sótt og skemmtiatriðin, sem flest eru heimatilbúin, hafa ávallt slegið í gegn. Bjarnareyingar vinna nú hörðum höndum að því að undirbúa ballið og einn þáttur undirbúningsins var að útvega lunda.