Margrét Lára Viðarsdóttir, landsliðskona í knattspyrnu, mun snúa aftur til Svíþjóðar í vikunni eftir að hafa tekið sér hvíld frá knattspyrnu í sumar vegna þrálátra lærmeiðsla. Margrét hefur samið á ný við Kristianstad út næsta keppnistímabil 2013. Margrét er öllum hnútum kunnug hjá sænska félaginu en þar fór hún á kostum í fyrra og var markahæsti leikmaður sænsku úrvalsdeildarinnar. Í millitíðinni spilaði hún með þýska stórliðinu Potsdam en dvölinni þar lauk í vor vegna meiðslanna.