Vikan var með rólegasta móti og engin alvarleg mál tilkynnt til lögreglu. Skemmtanahald helgarinnar fór ágætlega fram en þó var eitthvað um stympinga en engar kærur liggja fyrir enn sem komið er. Síðdegis þann 21. ágúst sl. var lögreglu tilkynnt um umferðaróhapp við afgreiðslu Herjólfs en þarna hafði langferðabíll ekið undir göngubrú Herjólfs með þeim afleiðingum að þak bifreiðarinnar rakst undir brúna og fletti ofan af bifreiðinni.