Á síðasta fundi framkvæmda- og hafnarráðs gerðu Sveinn R. Valgeirsson, Ólafur Snorrason og Friðrik Björgvinsson tæknifræðingur grein fyrir stöðunni. Framundan er meðal annars að fleyta nýrri útrásarpípu norður fyrir Eiði og síðan að tengja hana en þetta er mikil og vandasöm framkvæmd.