„Hvers virði er allt heimsins prjál ef það er enginn hér
sem stendur kyrr er aðrir hverfa á braut.
Sem vill þér jafnan vel og deilir með þér gleði og sorg
þá áttu minna en ekki neitt ef þú átt engan vin“.
Þessi texti Ólafs Hauks Símonarsonar er ein af perlum íslenskrar textagerðar að mínum dómi. Hann er það vegna þess hversu ótrúlega sannur hann er og kemur hann oft upp í huga mér þegar að ég hugsa til þess hvernig ástandið er í okkar litla þjóðfélagi.