Þessa dagana er vel við hæfi að lesa og velta fyrir sér Passíusálmum Hallgríms Péturssonar. Þeir eru sannkallað meistaraverk og eiga í svo mörgum skilningi fullt og ótvírætt erindi við nútímann. Þeir geta einnig verið okkur víti til varnaðar nú á þeim tæpa mánuði sem lifir fram að kosningum. Hrun- og útrásarflokkarnir, Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur, stefna nú að því að komast aftur til valda að nýju og fyrir þeim flokkum fara að mestu leyti, nú sem fyrr, þeir sem sem með græðgi og ágirnd í eigin þágu settu landið nánast á hausinn og leiddu þjóðina í fordæmalausar ógöngur á fjölmörgum sviðum.