Í Eyjafréttum í síðustu viku ritaði Andrés Sigurðsson grein þar sem hann fjallar að mestu um erindi mitt á borgarafundi um samgöngumál sem haldinn var í Höllinni undir yfirskriftinni, Horfum til framtíðar. Í upphafi greinar sinnar talar Andrés um að hann hafi litla reynslu af störfum í pólitík og kunni því lítið á klækjabrögð stjórnmálanna. Ég verð þó að segja að mér finnst hann nokkuð efnilegur á því sviði.