Vikan var með rólegra móti hjá lögreglu og engin alvarleg mál sem upp komu. Skemmtanahald helgarinnar fór nokkuð vel fram, fyrir utan eina líkamsárás. Ein líkamsárás var kærð til lögreglu eftir skemmtanahald helgarinnar en árásin átti sér stað í Höllinni. Samkvæmt upplýsingum lögreglu átti árásin sér stað á dansgólfinu en sá sem fyrir árásinni varð vissi ekki hver það var sem réðst á hann. Lögreglan óskar því eftir að þeir sem urðu vitni að árásinni, sem varð á milli kl. 02:00 og 02:30, hafi samband við lögreglu.