Þórhildur Ólafsdóttir, fyrrum fyrirliði kvennaliðs ÍBV í knattspyrnu, hefur ákveðið að ganga aftur í raðir ÍBV. Þórhildur skipti yfir í Þór/KA fyrir síðasta tímabil og varð m.a. Íslandsmeistari með liðinu. Koma Þórhildar er mikill happafengur fyrir ÍBV, enda leikmannahópur liðsins mjög þunnskipaður, ekki síst þar sem nú er endanlega ljóst að frænka Þórhildar og helsti markaskorari liðsins undanfarin ár, Kristín Erna Sigurlásdóttir, mun ekki leika með liðinu í sumar.