Banaslys varð á Suðurlandsvegi, skammt frá Þingborg í gær. Sendibifreið og vörubifreið, sem komu úr gagnstæðum áttum rákust á. Ökumaður sendibifreiðarinnar var fluttur á sjúkrahús í Reykjavík en var úrskurðaður látinn eftir komuna þangað. Ökumaður vörubifreiðarinnar var fluttur á sjúkrahús en er ekki alvarlega slasaður. Hinn látni var Leifur Ársæll Leifsson, fæddur 8. febrúar 1955 og búsettur að Smáragötu 5 í Vestmannaeyjum.