Nýja skip Ísfélagsins
Fyrir nokkrum mánuðum gekk Ísfélag Vestmannaeyja inn í kaup á uppsjávarskipi sem er í smíðum í Celiktarans skipasmíðastöðinni í Istanbul í Tyrklandi. Skipið er 80 metra langt og 17 metra breitt og verður afar vel búið til veiða á uppsjávarfiski s.s. loðnu, síld, makríl og kolmunna. Kælitankar skipsins eru 2.970 rúmmetrar þannig að burðargeta skipsins er mikil og styður vel við öfluga landvinnslu félagsins í Vestmannaeyjum og á �?órshöfn. Á facebooksíðu áhafnarinnar á Heimaey VE 1 segir Svanur Gunnsteinsson, yfirvélstjóri þar um borð að hann hætti á Heimaey og flytur sig yfir á nýja skip Ísfélagsins sem yfirvélstjóri þegar skipið kemur í vor. Myndin af skipinu sem hér fylgir er tekin af heimasíðu Heimaeyjar VE 1.

Nýjustu fréttir

Vikan í Eyjum: Herjólfur, framkvæmdir við höfnina og fjárhagsáætlun bæjarins
Lúðrasveitin í landsliðsklassa – Kraftur, gleði og glæsilegur samhljómur
Gera ráð fyrir 610 milljóna afgangi á næsta ári
Hausttónleikar Lúðrasveitar Vestmannaeyja í myndum
Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs
ÍBV vann öruggan sigur á Stjörnunni – Sandra fór á kostum
Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.