Drífa ekki meira með
Drífa �?orvaldsdóttir, hægri skytta í handboltaliði ÍBV, leikur ekki meira með liðinu í vetur. Drífa er með barni en hún hefur verið einn af sterkari leikmönnum liðsins það sem af er vetri og mikið högg fyrir liðið að hún spili ekki meira með í vetur. �??Drífa var að tilkynna okkur það, að hún ætlar að taka níu mánaða pásu,�?? sagði Svavar Vignisson, þjálfari ÍBV.
�??Hún skilur eftir sig mjög stórt skarð í okkar liði og spilaði ekki gegn Stjörnunni. Við nýtum pásuna í að finna einhverjar lausnir við þessu en Drífa er búin að vera mjög sterk í vetur. �?að sýnir hvað við missum sterkan leikmann að hún var valin í A-landsliðið fyrr í mánuðinum. Hún er fimmti leikmaðurinn sem segir mér að hún sé ófrísk síðan ég tók við liðinu. Eins skemmtilegt og gleðilegt og þetta er, þá er þetta farið að verða svolítið þreytandi fyrir þjálfarann. Við erum með svo lítinn hóp og megum ekki við svona rugli,�?? sagði Svavar og hló.
�??En að öllu gríni slepptu, þá erum við að hugsa þetta, hvernig við komum til með að leysa þessa stöðu en það eru nokkrir möguleikar sem við erum með og ætlum að vinna úr.�??

Nýjustu fréttir

Skyndihjálparnámskeið hjá Visku um helgina
Útför: Einar Birgir Sigurjónsson
Elís Þór æfði með A-landsliðinu
Treysti sér ekki til að vera heima og horfa á leikinn
Gagnrýna samning bæjarins við rekstraraðila heilsuræktar
Lönduðu fullfermi í Grindavík
Líf og fjör á Suðurlandi: Barnamenningardagar framundan
Tanja er íþróttamaður mánaðarins
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.