Hvað á menningarhúsið að heita?
Gamla félagsheimilið við Heiðarveg hefur tekið miklum stakkaskiptum síðustu mánuðina og hefur átt sér stað mikil endurnýjun innan veggja húnsæðisins. Nú stendur til að þróa starfsemi hússins yfir í menningarhús fyrir Vestmannaeyjar, sem þjóna mun hlutverki miðstöðvar fyrir menningar- og listaviðburði í bænum.
Vestmannaeyjabær ætlar að þessu tilefni að stofna til samkeppni um nafnagift á húsið og óskar eftir tillögum. Í kjölfar þess að nýtt nafn verður valið á húsið mun fara fram önnur samkeppni um logo tengt nafninu en það verður auglýst síðar. Verðlaun verða veitt fyrir nafnið sem fyrir valinu verður.
Tillögur að nafni á menningarhús Vestmannaeyja sendist á tölvupóstfangið menningarhus@vestmannaeyjar.is fyrir 29. janúar næstkomandi. �?eim skal fylgja stuttur rökstuðningur á nafnavalinu ásamt nafni og símanúmeri sendanda.
Fréttatilkynning

Nýjustu fréttir

Gyllta flóran frá Féló vann Stíl 2026
Útboð Vestmannaeyjabæjar um heilsurækt aftur til kærunefndar
Myndband frá höfninni: Steðji VE landar
Að loknu prófkjöri
Bærinn eignfærir lögfræðikostnað  
ÍBV tapaði gegn Haukum
Bæjarráð hafnar bótakröfu vegna gatnagerðar við Alþýðuhús
Laxey rís í Vestmannaeyjum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.