Á morgun sunnudag er hinn árlegi skákdagur. Í tilefni af því verður nýtt fljótandi taflsett vígt í heita pottinum í Sundlaug Vestmannaeyja kl. 13.00. Nokkrir aðilar úr Taflfélagi Vestmannaeyja munu mæta á svæðið og ætlar �?órarinn Ingi fyrrum starfsmaður Íþróttamiðstöðvar að taka fyrstu skákina við einhvern vel valinn skákmann úr röðum félagsins. Heyrst hefur að �?órarinn hafi skorað á sýslumanninn í Eyjum og verður gaman að sjá hvort hann þorir að mæta. Einnig var skorað á bæjarstjórann en hann flúði af landi brott. Fólk er hvatt til að kíkja við, fylgjast með og grípa í eina skák í pottinum eða á þurru landi. �?tlit er fyrir gott veður þó kalt sé en þó verður heitt á könnunni.