Vegna óviðráðanlegra orsaka verður að færa aðalfund Ferðamálasamtaka Vestmannaeyja. Áætlað var að halda fundinn á Kaffi Kró, en þess í stað verður hann í Hallarlundi, á annarri hæð Hallarinnar.
Sem sagt, aðalfundur samtakanna fer fram í Hallarlundi, laugardaginn 01.febrúar kl. 14.00. Venjulega aðalfundarstörf. Undirbúningsstjórn hvetur alla aðila í ferðaþjónustu til að mæta og taka þátt í spennandi starfi samtakanna á nýju ári.
Undirbúningsstjórn.