Fyrsti leikur Eyjamanna eftir langt hlé
Síðasti leikur 12. umferðar Olísdeildar karla verður í Eyjum í dag, klukkan 13:30 þegar heimamenn taka á móti neðsta liði deildarinnar, HK. ÍBV er sem stendur í 5. sæti deildarinnar með 12 stig eftir 10 leiki en HK er í 8. og neðsta sæti með 3 stig eftir 11 leiki. Segja má að nýtt tímabil hefjist nú í deildinni eftir tæplega tveggja mánaða hlé vegna Evrópumóts landsliða í Danmörku í janúar. �?ll liðin hafa reynt að styrkja leik sinn og jafnvel leikmannahóp sinn fyrir lokasprettinn en deildin hefur sjaldan verið jafnari en í ár. Vinni ÍBV í dag og leikinn sem liðið á inni gegn Akureyri á heimavelli, er ÍBV aðeins stigi á eftir Haukum, sem eru á toppnum og þykja vera í sérflokki. Haukar eru efstir með 19 stig, þá kemur Fram með 14, FH og Valur með 13 stig, ÍBV með 12, ÍR er í 6. sæti með 10, Akureyri í 7. sæti með 9 stig og eins og áður sagði, er HK í neðsta sæti með 3 stig. Eins og sjá má er keppnin hörð og lítið sem má út af bregða.
Eyjamenn hafa breytt leikmannahópi sínum aðeins, sendu erlendu leikmennina heim en fengu þeirra í stað einn norskan markvörð og verður fróðlegt að sjá hvort hann færi liðinu meira jafnvægi í markvörsluna en verið hefur. �?á endurheimtir liðið Róbert Hostert úr meiðslum en hann hefur verið lengi frá keppni.

Nýjustu fréttir

MAST, Fiskistofa og Verðlagsstofa skiptaverðs sameinuð
Það þarf meira en hús til að reka skóla
Grjótleit komin á fullt á Haugasvæðinu
Vigga og Guðni hafa heimsótt 86 lönd og eru hvergi nærri hætt
Sólhlíð, Áshamar og Stakkagerðistún
Fyrstu kjarnasýnin komin upp á Landeyjasandi
Hélt að verið væri að gera grín í sér
Útlaginn gefur út sitt fyrsta lag: „Þetta er bara byrjunin“
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.