Menningarleg innrás frá Eyjum
�?að stendur mikið til hjá Eyjamönnum og öðrum laugardaginn 8. febrúar því þá munu fara fram tveir stórviðburðir í menningarlífinu á höfuðborgarsvæðinu. Í Hörpu fara fram tónleikarnir �??�?g þrái heimaslóð” sem tileinkaðir eru minningu Ása í Bæ, ásamt úrvali þjóðhátíðarlaga. Að tónleikunum loknum og í beinu framhaldi hefst hið árlega Eyjakvöld á veitingahúsinu SPOT í Kópavogi. Skemmtunin á SPOT hefst kl. 23.00 með áframhaldandi fjöldasöng Brekkusöngvaranna og í kjölfarið dansleik með Logum, Bjartmari og Dans Á Rósum, langt fram á morgun.
Miðasala á báða viðburðina gengur vel og eru til að mynda fáir miðar eftir í Hörpu og fer því hver að verða síðastur á að ná sér í miða. Forsalan á SPOT er síðan komin á fullt skrið en einnig verður hægt að fá miða við innganginn á SPOT eins og venja er. Bjarni �?lafur Guðmundsson og �?lafur Guðlaugsson skipuleggjendur viðburðanna hvetja Eyjamenn og Eyjavini til að ná sér í miða í tíma.
Einhverjir höfðu áhyggjur af því í fyrra að þetta væri of mikið fjör á einu kvöldi og allir aðrir en við gengu svo langt að stilla þessum tveimur viðburðum upp sem samkeppni, sem er svo fjarri öllum sannindum. �??Við �?li höfum unnið saman að þessum kvöldum sl. tvö ár og stillt okkur saman með því að tímasetja viðburðina þannig að sem flestir geti notið þeirra, enda eigum við í ágætu samstarfi allt árið með hin ýmsu verkefni�?? sagði Bjarni �?lafur. �??Við vorum til dæmis með rútuferðir að loknum tónleikunum í Hörpu sem ferjuðu fólkið í fjörið á SPOT og það sama verður gert á laugardaginn�??, bætir �?li við.
�?eir félagar vonast að sjálfsögðu eftir því að sem flestir geti komið og skemmt sér saman enda er sjálfsagt ekkert bæjarfélag sem hertekur höfuðborgarsvæðið svona afgerandi eins og við Eyjamenn gerum þetta kvöld og vonandi verður þetta kvöld enn betra en það síðasta, fyrir um ári síðan, sem þó var alveg stórkostlegt kvöld í alla staði.
Miða í Hörpu er hægt að nálgast á midi.is og harpa.is og í Eyjakvöldið á SPOT er hægt að nálgast miða á staðnum eða á Hárstofu Viktors í Eyjum. Forsölumiðinn gildir síðan sem frítt far í �??Bekkjabílinn�?? frá Hörpu og á SPOT

Nýjustu fréttir

Gul viðvörun fyrir allt landið
Ljósmyndakeppni fyrir börn og ungmenni
Íþróttamaður mánaðarins – Birna María
Þurfa Eyjamenn að taka málin í sínar hendur?
Framtíðarsýn – tökum samtalið
Vestmannaeyjar úti í kuldanum í fjárlagafrumvarpi 2026
Hátt í 50 metrar á Stórhöfða
Samgöngur  við Eyjar settar í hættu?
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.