Sefhæna á vappi
Í gær sáu glöggir vegfarendur óvenjulegan fugl á ferli og hringdu á Sæheima Fiskasafn til að láta vita af ferðum hans. Fyrst sást hann á Stakkagerðistúni, næst fréttist af honum utan við veitingastaðinn SubWay, enda líklega í ætisleit. �?á lá leiðin að Miðstöðinni en þar fældist hann og hljóp niður á Vigtartorg þar sem starfsmenn Sæheima handsömuðu hann.
�?egar fuglinn var skoðaður kom í ljós að um var að ræða sefhænu (Gallinula chloropus). �?ar sem evrópska sefhænan er mjög áþekk náskyldri amerískri tegund var haft samband við fuglafræðing sem staðfesti að þarna væri evrópska tegundin á ferðinni.
Líklega hefur fuglinn verið mjög svangur eftir ferðalagið langa yfir hafið en hann gleypti í sig fisk sem boðið var upp á og kroppaði eitthvað í kornið.
Sefhænur eru útbreiddar um alla Evrópu nema nyrst og eru sjaldséðir gestir hér á Íslandi. �?ær lifa í votlendi þar sem er þéttur gróður t.d. í mýrum og við tjarnir. �?ær gera sér gjarnan hreiður í reyr eða kjarri náægt vatni. Sefhænur lifa á ýmsum gróðri og smáum vatnadýrum. Sefhænur eru að hluta til farfuglar en þær yfirgefa heimkynni sín yfir vetrartímann á köldustu svæðunum t.d. í Austur Evrópu þar sem vötn leggur á vetrum.
Sefhænu þessari verður haldið á safninu í nokkra daga eða vikur og munum við reyna að fita hana aðeins áður en henni verður sleppt.
(setur.is)

Nýjustu fréttir

Vikan í Eyjum: Herjólfur, framkvæmdir við höfnina og fjárhagsáætlun bæjarins
Lúðrasveitin í landsliðsklassa – Kraftur, gleði og glæsilegur samhljómur
Gera ráð fyrir 610 milljóna afgangi á næsta ári
Hausttónleikar Lúðrasveitar Vestmannaeyja í myndum
Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs
ÍBV vann öruggan sigur á Stjörnunni – Sandra fór á kostum
Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.