Fiskiðjan og skrifstofuhús Ísfélagsins rifin og Friðarhöfn breytt
Búið er að höggva á þann hnút sem hafði myndast milli Ísfélags og Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum. Málavextir voru þeir að Ísfélagið hugðist fara í miklar framkvæmdir við frystihús sitt sem m.a. fólst í því að byggja inn á götu milli frystihúsanna tveggja. �?etta hugnaðist forráðamönnum Vinnslustöðvarinnar ekki, enda töldu þeir að verið væri að þrengja að starfsemi fyrirtækisins varðandi aðkeyrslu vörubifreiða. Í tilkynningu sem Elliði Vignisson, bæjarstjóri, sendi frá sér kemur fram að dómsmál vegna þessa, verði fellt niður en þríhliða samkomulag fyrirtækjanna tveggja og bæjarins felur m.a. í sér breytingu á Friðarhöfn, þannig að suður hafnarkanturinn verði færður fram um 20 metra til norðurs og þannig verði skapað meira rými við bryggjuna.
�?á kemur fram í samkomulaginu að Ísfélag Vestmannaeyja hyggist fella húsnæði félagsins við Strandveg 26 og Vinnslustöðin austurhús Fiskiðjunnar en lóðirnar verða að því loknu, afhentar Vestmannaeyjabæ án kvaða.
Fréttatilkynninguna má lesa í heild sinni hér að neðan:
Með þríhliðasamkomulagi milli Vestmannaeyjabæjar, Vinnslustöðvar Vestmannaeyja og Ísfélags Vestmannaeyja hafa aðilar komist að samkomulagi sem meðal annars felur það í sér að dómsmál það sem rekið hefur verið á milli aðila fyrir Héraðsdómi Suðurlands er fellt niður. �?á er kveðið á um framtíðarskipulag á hafnarsvæði H-1.
Vestmannaeyjabær mun í framhaldinu leggja fram nýtt deili- og aðalskipulag fyrir hafnarsvæði H1 þar sem m.a. eru athafnasvæði ÍV og VSV.
Aðilar eru sammála um að breytingartillaga að aðalskipulagi og tillaga að deiliskipulagi geri ráð fyrir auknu athafnarými sunnan megin í botni Friðarhafnar. �?ar verður ma. horft til landfyllingar í botni Friðarhafnar allt að 20 metra frá núverandi stálþili að sunnanverðu. Enn fremur felur samkomulagið það í sér að Ísfélag Vestmannaeyja felli húsnæði félagsins við Strandveg 26 og VSV austurhús Fiskiðjunar. �?ær lóðir verða afhentar Vestmannaeyjabæ án kvaða
Ofangreindar skipulagstillögur og breytingar verða eins og aðrir þættir í samkomulaginu eftir sem áður unnar í samræmi við ákvæði skipulagslaga.
Fyrrgreint samkomulag er gert með fyrirvara um samþykki þeirra stjórnvalda sem um málið þurfa að fjalla.
Elliði Vignisson
Bæjarstjóri í Vestmannaeyjum

Nýjustu fréttir

Ekki einhugur um milljóna framlag til ÍBV
Loðnuvertíðin hafin í Eyjum
Heiðurshjónin Hjalti og Vera Björk Eyjafólk ársins 2025
Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.