Lúðrasveit Vm á stórtónleikum í Grindavík
Lúðrasveit Vestmannaeyja og �?orlákshafnar mun koma fram ásamt Jónasi Sig og Fjallabræðrum á sannkölluðum stórtónleikum í Grindavík laugardaginn 22. mars næstkomandi. Aldrei hafa þessar sveitir komið fram saman en þó að einhverju leyti, enda annálað samstarf Lúðrasveitar Vestmannaeyja og Fjallabræðra, auk samstarf Lúðrasveitar �?orlákshafnar og Jónasar Sig. Lúðrasveitirnar sameinuðust á stórtónleikum í Höllinni á dögunum en í Grindavík bætist karlakórinn Fjallbræður við. �?að ætti því að vera enn meira trukk í tónlistinni.
Tónleikarnir er lokahnykkur 40 ára kaupstaðarafmælis Grindavíkurbæjar og verður Menningarvika bæjarins, 15. til 22. mars mun viðameiri en áður af því tilefni.
�??�?essi viðburður er sérstaklega settur saman fyrir afmæli Grindavíkurkaupstaðar. �?essir aðilar hafa ekki komið saman á þennan hátt áður og verður hér um einstakan viðburð að ræða þar sem blandað verður saman því besta sem þeir hafa fram að færa. �?arna munu saman koma hópar frá sjávarplássunum Flateyri, �?orlákshöfn og Vestmannaeyjum í sjávarplássinu Grindavík. Eins og öllum er kunnugt sem á annað borð þekkja til þessara sjávarplássa, þá eru náttúruöflin kröftug og það sama má segja um fólkið sem þar býr og því er óhætt að lofa kraftmiklum og stórskemmtilegum tónleikum sem enginn má láta framhjá sér fara!�?? segir í fréttatilkynningu frá Grindavíkurbæ.
Miðasala er hafin í sjoppunni Aðal-braut, Víkurbraut 31, Grindavík. Miðaverð á tónleikana er 3.900 kr. Stefnan er að fylla íþróttahúsið í Grindavík.

Nýjustu fréttir

18 þúsund rúmmetrar fjarlægðir fyrstu dagana
Herjólfur stefnir á eina ferð til Landeyjahafnar síðdegis
Laxey sækir um leyfi fyrir 9.300 fermetra seiðaeldisstöð
Myndband: Gróðurvinin Gaujulundur
Anna Rós og Einar á nýju skólaári hjá Grv
FIFA Arena gæti kostað bæinn allt að 24 milljónir
Herjólfur siglir til Þorlákshafnar fyrri hluta dags
Gul viðvörun vegna hvassviðris á Suðurlandi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.