Rétt í þessu var Björgunarfélag Vestmannaeyja kallað út vegna vélarvana báts austan við Heimaey. Um er að ræða trilluna Blíðu VE, 7 tonna plastbát en báturinn er um tvær mílur austan við Stórhöfða. Björgunarbáturinn �?ór er farinn áleiðis að Blíðu og ætti að vera kominn að henni innan nokkurra mínútna. Reikna má með því að björgunarbáturinn dragi trilluna inn til hafnar en samkvæmt ölduhæð við Surtsey er 2,5 metra ölduhæð en veður er gott í Vestmannaeyjum.