Hættum ekki fyrr en við náum samningum á okkar forsendum
Trúnaðarmenn áhafnarinnar á Herjólfi vísuðu á Jónas Garðarsson, framkvæmdastjóra Sjómannafélagsins og formann samninganefndarinnar þegar leitað var viðbragða þeirra við verkfallsboðuninni. �?egar rætt var við Jónas í morgun sagði hann nokkuð bratt á milli aðila en þarna sé reynt að ná sambærilegum samningum fyrir áhöfn Herjólfs og sjómenn hjá Eimskip náðu í samningum í maí 2011.
�??�?á voru gerðir samningar við tímavinnusjómenn, sjómenn sem ekki eru á aflahlut,�?? sagði Jónas. �??Sjómenn hjá Landhelgisgæslunni, Hafró og á flutningaskipum sem fengu þá verulegar bætur á sínum kjörum. �?að gekk svo yfir til vélstjóra og skipstjórnarmanna en þarna sat áhöfnin á Herjólfi eftir og það viljum við leiðrétta.�??
Jónas segir að auk hærri launa geri þeir kröfur um greiðslu og breytingar á yfirvinnu og að áhöfnin fái sjómannaafslátt. �??�?að er níu tíma dagvinna á Herjólfi sem er eitthvað sem ég ekki skil. Fleiri atriði má nefna en fyrst og fremst erum við að sækja á um sambærileg kjör á Herjólfi og öðrum flutningaskipum. �?að er líka ósvífni af Eimskip og ríkinu að neita áhöfninni á Herjólfi um sjómannaafslátt þegar þessir sömu aðilar borga hann á öllum sínum skipum.�??

Nýjustu fréttir

Hátt í 50 metrar á Stórhöfða
Samgöngur  við Eyjar settar í hættu?
Gamla myndin – Kartöflugarðar í Eyjum 
Landsbankinn og N1 bætast í hluthafahóp Eyjaganga
Eló heldur tónleika í Eyjum
Þórunn Sveinsdóttir VE kveður Eyjar
Rauði krossinn í Eyjum fagnaði 85 árum með opnu húsi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.