Aðeins eitt barn fæðst í Eyjum frá áramótum
Aðeins eitt barn af sjö hefur fæðst í Vestmannaeyjum það sem af er ári. Skurðstofunni á Heilbrigðisstofun Vestmannaeyja var lokað í haust. Síðan hafa 28 konur fætt upp á landi. Ljósmóðir í Eyjum segir þá stöðu sorglega að börn fæðist aðeins fyrir slysni í bænum.
Allt árið í fyrra fæddust 25 börn í Vestmannaeyjum en 34 upp á landi. 22 fæddust í Reykjavík eftir að skurðstofunni var endanlega lokað í haust en tólf fyrir það, allt árið höfðu þó verið vandræði með stöðu svæfingalæknis.
Drífa Björnsdóttir ljósmóðir segir sorglegt að ekkert sé að gerast varðandi stöðu Heilbrigðisstofnunar Vestmannaeyja. �??Við höfum á tilfinningunni að þessi stofnun sé að deyja. �?að er orðið þrúgandi að vinna hér út af mörgum samverkandi þáttum. Ráðuneytið þarf að fara að gera eitthvað. Fyrri ríkisstjórn gerði ekkert og núverandi ríkisstjórn gerir ekkert,�?? segir Drífa.
Árin 2009 til 2011 fæddust 36 til 40 börn í Vestmannaeyjum á hverju ári. Alls fæddust 153 börn, 40 fæddust upp á landi, þar af 9 vegna þess að skurðstofan var lokuð af einhverju ástæðum. 113 börn fæddust í Eyjum eða 74 prósent barnanna. Árið 2012 fæddust rétt rúm 50 prósent barnanna í Eyjum, alls fóru 18 upp á land, þar af níu vegna lokunar skurðstofunnar. Í fyrra fæddust í fyrsta sinn í langan tíma færri börn í eyjum en upp á landi eða aðeins 25 af 59 sem gera rúm 42 prósent.
�??�?að er sorgleg að í bæjarfélagið með yfir fjögur þúsund íbúa fæðist eingöngu börn fyrir slysni,�?? segir Drífa.
ruv.is greindi frá

Nýjustu fréttir

Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Sæunn Magnúsdóttir gengur til liðs við Miðflokkinn
Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.