Bond mætir í messu 23. mars
Sunnudagskvöldið 23. mars nk. verður með frekar óhefðbundu sniði í Landakirkju. �?skulýðsfélag Landakirkju og KFUM&K í Vestmannaeyjum ætlar að halda upp á �?skulýðsdag �?jóðkirkjunnar sem var 2. mars sl. þetta sunnudagskvöld kl. 20:00 með því að slá upp glæsilegri tónlistarmessu. Undanfarin 2 ár hafa messur að þessu tagi borið reglulega á góma og hefur tónlist meistara á morð við Elvis Presley, Johnny Cash og U2 fengið að hljóma, en í þetta skiptið mun vera farin heldur óvenjulegri leið. Titillög úr kvikmyndum um njósnara hennar hátignar, James Bond munu verða flutt af 10 manna hljómsveit. Söngkonurnar Sunna Guðlaugsdóttir, Una �?orvaldsdóttir og Helga Sóley Aradóttir munu ljá lögunum raddir sínar og brasskvartetinn Pípulagnirnar mun blása okkur Bond-línurar í brjóst. �?skulýðsfélagið mun verða með uppgjör af fjáröflun fyrir ferð félagsins á Norrænt KFUM og KFUK mót í sumar, eftir messuna en það verður eitthvað sem allir messugestir munu hafa gaman að. Prestur verður sr. Guðmundur �?rn Jónsson og Gísli Stefánsson æskulýðsfulltrúi mun predika ásamt því að leiða hljómsveitina. Nú er bara spurningin hvernig hægt er að flétta byssuglaðan Bond við orð Drottins.
Fréttatikynning.

Nýjustu fréttir

Vikan í Eyjum: Herjólfur, framkvæmdir við höfnina og fjárhagsáætlun bæjarins
Lúðrasveitin í landsliðsklassa – Kraftur, gleði og glæsilegur samhljómur
Gera ráð fyrir 610 milljóna afgangi á næsta ári
Hausttónleikar Lúðrasveitar Vestmannaeyja í myndum
Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs
ÍBV vann öruggan sigur á Stjörnunni – Sandra fór á kostum
Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.