�?raunhæfar hækkanir á bilinu 43 til 120% hjá Sjómannafélaginu
Ásmundur Friðriksson, alþingismaður í Suðurkjördæmi tók til máls á Alþingi í dag og fór yfir samgöngumál við Vestmannaeyjar. Ásmundur fór yfir stöðuna og hversu slæm áhrif verkfalls félaga Sjómannafélags Íslands á Herjólfi hefðu á samfélagið. �?ingmaðurinn kom einnig inn á launakröfur Sjómannafélagsins og sagði þær óraunhæfar. �??�?etta er í skjóli þess að mjög óraunhæfar kröfur eru gerðar um launahækkanir, á bilinu 43 til 120% og ég held að við, í þessu samfélagi, séum ekki að styðja við slíkar launakröfur. �?að hefur náðst ágæt sátt í þessu samfélagi um laun og launahækkanir og þessar kröfur eru úti á túni miðað við það sem gert hefur verið. En framkvæmdastjóri Sjómannafélagsins segir, með leyfi forseta: �??Við hættum ekki fyrr en við náum samningi á okkar forsendum og alveg sama þó við dinglum við þetta fram á sumar.�?? �?etta eru alvarleg orð og alvarleg skilaboð til Vestmannaeyinga,�?? sagði Ásmundur og vitnaði þar í viðtal við Jónas Garðarsson, framkvæmdastjóra Sjómannafélags Íslands í Eyjafréttum í síðustu viku.
Hefna sín á Vestmannaeyingum
�?á kom hann inn á fleiri aðgerðir Sjómannafélags Íslands. �??Í dag hef ég fréttir af því að Sjómannasambandið hefur sett yfirvinnubann á Brúarfoss, sem kemur til Vestmannaeyja á morgun til að taka gámafisk til Englands, eingöngu til að hefna sín á Vestmannaeyingum að ég sé best. Og þetta er algjörlega ófremdarástand að Sjómannasambandið skuli ætla að nota hásetana á Herjólfi sem héra í launabaráttu sinni við skipafélögin,�?? sagði Ásmundur í ræðustól Alþingis í dag.
Ásmundur kom einnig inn á lokun flugvallarins en hann hvatti innanríkisráðherra að beita sér fyrir opnun hans á laugardögum og segir Ásmundur að ráðherra hafi tekið vel í það.

Nýjustu fréttir

Fyrstu kjarnasýnin komin upp á Landeyjasandi
Hélt að verið væri að gera grín í sér
Útlaginn gefur út sitt fyrsta lag: „Þetta er bara byrjunin“
Frá lofti og landi: Uppbygging Laxeyjar tekur á sig mynd
Sólarlag Guðrúnar kemur út í dag
ÍBV stelpurnar mæta Þrótti R. í undanúrslitum Mjólkurbikarsins
Karfi og blandaður afli hjá Eyjunum
Innblásturinn er alls staðar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.