Telur að ríkið eigi að grípa inn í fyrr en síðar
Páll Jóhann Pálsson, Framsóknarflokki og 5. þingmaður Suðurkjördæmis segir að ástandið í samgöngumálum í Vestmannaeyjum sé ekki ásættanlegt í svari sínu við fyrirspurn Eyjafrétta. Hann telur að stjórnvöld verði að grípa inn í fyrr en síðar. �??Nú þekki ég ekki samninginn milli Vegagerðarinnar og Eimskips um siglingar Herjólfs milli lands og Eyja en fyndist ekki óeðlilegt að einhver ákvæði væru í honum um lágmarksferðafjölda á dag, bæði virka daga og um helgar meðan náttúruöfl koma ekki í veg fyrir það. Hvar ábyrgðin liggur veit ég ekki en hefði talið að hún liggi alltaf hjá Vegagerðinni eða með öðrum orðum ríkinu.
Að sjálfsögðu er ríkið ekki aðili að þessari deilu milli sjómannafélagsins og Eimskips og getur þvi ekki blandað sér í hana þó það sé ansi hart að 14 manns geti haldið þessu máli í gíslingu. Ríkið gæti hins vegar tryggt að flogið yrði um helgar til að byrja með þó það leysi ekki allann vandann. �?hagræði fyrirtækja og tekjumissir þeirra hlýtur að vera mikill og einmitt í svona ótíð eins og hefur verið undanfarið, þegar mest er þörfin á fiskflutningum til og frá Eyjum.
�?að er ekki ásættanlegt að þjóðfélagið í Eyjum sem greiðir hæsta tekjuskatt pr. íbúa 2012 eða 521 þúsund krónur og 332 þúsund krónur í veiðigjöld sé aðeins í samgöngusambandi við fastalandið á dagvinnutíma og það um hávertíð þegar mikill fiskur berst á land.
Málið er þeim mun alvarlegra þegar stjórnvöld hafa verið að skerða grunnþjónustu í Eyjum svo sem í heilbrigðismálum og beint sjúklingum og barnshafandi konum upp á fastalandið og þá spyr ég, er ekki full þörf á að hlusta á heimamenn og bæta frekar í þá þjónustu og skora ég á samstarfsmenn mína að hugsa það með mér.
�?g skora jafnframt á deiluaðila að leggja sig fram og leysa þetta mál á sanngjarnan hátt.�??
Hér að neðan má lesa bréf sem ritstjórn Eyjafrétta sendi á alla tíu þingmenn kjördæmisins:
Kæri þingmannahópur Sunnlendinga
Eins og þið kannski vitið, er verkfall háseta, bátsmanna og þerna hafið um borð í Herjólfi. Verkfallið hefur nú staðið í tæpa viku og íbúar Vestmanneyja þegar farnir að finna illilega fyrir verkfallsaðgerðum, sem halda samfélaginu hér í heljargreipum. Skipið siglir nú aðeins eina ferð á virkum dögum, enga á laugardögum og sunnudögum. �?fært hefur verið í Landeyjahöfn undanfarið og verður fram í næstu viku. Verkfallið bitnar einkum á íbúum Vestmannaeyja, þeim sem síst mega við því, barnafjölskyldum og þeim sem þurfa að sækja læknisþjónustu til höfuðborgarinnar. Sem dæmi má nefna íþróttahópa sem annars færu í dagsferð um helgi, þurfa nú að fá frí tvo daga í skóla, gista í þrjár nætur með tilheyrandi aukakostnaði foreldra. Dæmi eru um að þeir sem þurfi að sækja læknisþjónustu, þurfi frí úr vinnu í þrjá daga. Við þetta má bæta raunverulegt tap fyrirtækja í bænum.
Eyjafréttir leita eftir viðbrögðum þingmanna kjördæmisins við þessari stöðu sem upp er komin og hvernig þú ætlar að beita þér fyrir því að samgöngumálum verði komið aftur í viðunandi horf. �?að bendir nefnilega allt til þess að deiluaðilar séu ekkert að nálgast í viðræðum, sem reyndar hafa ekki verið í gangi síðan í síðustu viku. Deiluaðilar hafa ekki séð ástæðu til að funda, svo mikið ber á milli. Er þá ekki komin rík ástæða fyrir hið opinbera að grípa inn í?
Júlíus G. Ingason
ritstjóri Eyjafrétta

Nýjustu fréttir

Eló heldur tónleika í Eyjum
Þórunn Sveinsdóttir VE kveður Eyjar
Rauði krossinn í Eyjum fagnaði 85 árum með opnu húsi
Sveiflur í veðri og ógnar brim
Gul viðvörun – Austanhríð
Kristín Klara lék í sigri Íslands á Serbíu
Þar sem andinn er góður og stemningin í klefanum frábær
Bílaumboðið Una selur XPENG bíla á Íslandi 
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.