Flugfélagið Ernir heldur uppi mjög góðri þjónustu við Vestmannaeyjar og ríkir almenn ánægja með félagið í Vestmannaeyjum. Nú þegar samgöngur á sjó eru í lamasessi, hefur félagið bætt við aukaflugum. �?annig verður t.d. fjórar ferðir milli lands og Eyja á laugardag, þótt félagið haldi ekki úti áætlunarflugi á þeim degi. �??Við munum setja að lágmarki upp fjögur flug til Eyja á laugardaginn og gæti vel farið svo að fleiri detti inn. Einnig verða flogin fjögur flug á morgun föstudag, sem sagt nú þegar komin tvö aukaflug þann daginn, það sama má segja um sunnudaginn. Við erum á tánum yfir bókunum þessa daga og reynum að setja upp eins mikið af auka flugum og mögulegt er hverju sinni,�?? sagði Ásgeir �?rn �?orsteinsson, Sölu og markaðsstjóri Ernis.