Ekkert varð af yfirvinnubanni skipverja á Brúarfossi við komu skipsins til Vestmannaeyja í morgun, sem Sjómannafélag Íslands hafði tilkynnt til Eimskips í gær. �?etta kemur fram á vef R�?V en þar segir jafnframt að Samtök atvinnulífsins Samtök atvinnulífsins telji yfirvinnubannið hafi verið boðað ólöglega, boða þurfi til verkfallsaðgerða með viku fyrirvara. Hins vegar er haft eftir Jónasi Garðarssyni, hjá Sjómannafélagi Íslands að ekki þurfi að boða yfirvinnubann, það sé einfaldlega ekki hægt að neyða starfsmenn til yfirvinnu. Hins vegar hafi verið ákveðið að falla frá aðgerðum eftir fundahöld í gær.
�??Aðspurður um frekari verkfallsaðgerðir segir Jónas að hann hafi nýtt ferðina til Vestmannaeyja til að ræða það við sitt fólk á Herjólfi. Jónas vill ekki veita nánari upplýsingar um niðurstöðu þeirra viðræðna, en hann var staddur um borð í Herjólfi á leið frá Eyjum þegar fréttastofa náði tali af honum. Ríkissáttasemjari hefur boðað til sáttafundar í kjaradeilunni klukkan 13 á morgun, föstudag,�?? segir á vef R�?V.