Athugasemd við athugasemd
Áfram heldur fulltrúi Sjómannafélags Íslands að bera vísvitandi út rangar fréttir frá fundum hjá ríkissáttasemjara. �?að er gríðarlega alvarlegt og sýnir betur en margt annað að sá aðili er ekki mikið að hafa áhyggur af því hvort eða hvenær þessi alvarlega deila leysist. Hann ætlar líklega eins og hann svo smekklega sagði í upphafi að �??dingla við þetta fram á sumar�??. Fyrir fólk sem er ekki á hverjum degi í svona samningavinnu er þetta döpur upplifun og í raun ótrúleg, en svona vinna því miður sumir.
Hingað til hef ég ekkert látið hafa eftir mér um þetta mál í fjölmiðlum en get ekki setið á mér nú.
�?g sem eini íbúinn í Vestmannaeyjum sem hefur setið við borð ríkissáttasemjara í þessu máli veit auðvitað hvað er rétt og hvað er rangt í þessu, veit það amk betur en aðrir sem í Eyjum búa. �?g ætla ekki hér að fara að ræða hvað er rætt á þessum fundum eða hvað er boðið en get sagt með mjög góðri samvisku að fulltrúi Sjómannafélags Íslands fer einfaldlega með rangt mál. Fólk verður svo sjálft að velja hverju það trúir. Fulltrúa Sjómannafélags Íslands ætti að vera það ljóst að þessi deila verður ekki leyst í fjölmiðlum og að viðræður og þreifingar eiga sér stund og stað en alls ekki í fjölmiðlum eins ágætir og þeir nú eru.
Á þessa sáttafundi hingað til hafa mætt auk sáttasemjara, 1-2 fulltrúar frá Samtökum atvinnulífsins, 2-3 fulltrúar Eimskip og 2-3 fulltrúar Sjómannafélags Íslands en því miður hefur aldrei neinn úr áhöfn Herjólfs mætt. �?að er auðvitað ekki mitt að segja til um það hvort eða þá hverjir koma frá áhöfninni. �?g hlýt þó í þessu ljósi að skora á þá að senda fulltrúa sinn til næsta fundar á mánudaginn kl 10:30 og á alla fundi þar á eftir. Aðeins þannig fá þeir réttar upplýsingar um hvað þar fer fram, hvað er boðið og þá hverju þeir eru að hafna ef það yrði niðurstaðan.

Nýjustu fréttir

Prófkjör Sjálfstæðisflokksins er í dag
Vestmannaeyjar í gegnum linsu liðins tíma
Gleðilegan kjördag
Spennandi prófkjör Sjálfstæðismanna í Eyjum
Pílan: Deildarkeppni lokið – Útsláttur hefst
Fasteignaumfjöllunin – útsýni á heimsmælikvarða
Fyrir þig en ekki sjálfa sig
Laskað lið ÍBV tapaði gegn Val
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.