ÍBV hélt þriðja sætinu
ÍBV tók á móti FH í dag í síðustu umferð Olísdeildar kvenna. ÍBV þurfti á sigri að halda til að halda þriðja sætinu en Fram hefði getað skotist upp fyrir ÍBV ef Safamýrarliðið myndi vinna Hauka og ÍBV tapa fyrir FH. ÍBV dugði í raun og veru bara eitt stig en að sjálfsögðu var stefnan sett á sigur. Og sigur hafðist að lokum en FH veitti ÍBV harða mótspyrnu og voru inni í leiknum allt þar til um tíu mínútur voru eftir, að stelpurnar fundu loks taktinn og tryggðu sér sigurinn. Lokatölur urðu 24:21 en ÍBV náði mest sex marka forystu, 23:18 þegar skammt var til leiksloka.
Leikurinn fór rólega af stað, reyndar mjög rólega því þegar fimmtán mínútur voru búnar, var staðan 3:1 fyrir ÍBV. Sóknarleikur beggja liða var arfaslakur en að sama skapi var varnarleikurinn góður. Eyjaliðið átti reyndar í erfiðleikum fyrstu 50 mínútur leiksins að finna glufur á vörn FH-inga en lengst af munaði einu til þremur mörkum á liðunum og staðan í hálfleik var 11:8 ÍBV í vil. FH liðið náði svo að jafna metin í byrjun síðari hálfleiks og var jafnt framan af en í stöðunni 17:17 brustu flóðgáttirnar, ÍBV skoraði sjö mörk gegn engu marki FH og tryggði sér sigurinn dýrmæta.
Nú liggur fyrir að ÍBV mætir FH annað árið í röð í 8-liða úrslitum. Í fyrra var Jón Gunnlaugur Viggósson, annar tveggja þjálfara ÍBV einmitt hinu megin við borðið, stýrði FH en hann segist spenntur fyrir komandi rimmu í myndbandsviðtali sem fylgir fréttinni.
Mörk ÍBV: Vera Lopes 11, Ester �?skarsdóttir 5, Guðbjörg Guðmannsdóttir 4, Díana Dögg Magnúsdóttir 3, Telma Amado 1.
Varin skot: Erla Rós Sigmarsdóttir 11, Dröfn Haraldsdóttir 2.

Nýjustu fréttir

Vikan í Eyjum: Herjólfur, framkvæmdir við höfnina og fjárhagsáætlun bæjarins
Lúðrasveitin í landsliðsklassa – Kraftur, gleði og glæsilegur samhljómur
Gera ráð fyrir 610 milljóna afgangi á næsta ári
Hausttónleikar Lúðrasveitar Vestmannaeyja í myndum
Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs
ÍBV vann öruggan sigur á Stjörnunni – Sandra fór á kostum
Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.