Ljóst er að óásættanlegt ástand ríkir í samgöngum við Vestmannaeyjar nú þegar verkfall og yfirvinnubann undirmanna á Herjólfi hefur staðið í 3 vikur. Nógu slæmt hefur nú ástandið verið í þessum málum undanfarna mánuði að varla var á það bætandi. Ýmsar spurningar vakna vegna verkfallsins og svo virðist vera sem að hvorugur samningsaðila sé mjög áhyggjufullur vegna stöðunnar og mikið ber á milli. Erfitt er að gera sér grein fyrir stöðunni horfandi á þetta utanfrá en ljóst er að ef samningar eiga að takast verða báðir deiluaðilar að gefa eftir, koma til móts við hvorn annan og ná viðunandi samningi. �?t á það ganga samningar alltaf. Samningar hafa aldrei náðst þannig að annar aðilinn nái öllu sínu fram og hinn gefi eftir, sama hversu eðlilegar og raunhæfar menn telja kröfur sínar vera.
Framganga Jónasar Garðarssonar, talsmanns undirmanna, hefur varla aukið samúð með málstað þeirra og yfirlýsingar hans og umfjöllun hefur ekki vakið von í brjósti um að ákefð væri í að ná samkomulagi.
Fulltrúar Eimskipa hafa heldur ekki virkað mjög strekktir vegna stöðunnar og því hafa óneitanlega vaknað spurningar um hvort að verkfallið væri í raun og veru nokkuð að bíta fyrirtækið eða valda því fjárhagslegu tjóni. Ekki veit ég hvernig samningur Eimskipa við Vegagerðina er, þeim samningi hefur ekki verið mikið flaggað svo að ég hafi orðið var við, en ég velti því fyrir mér hvaða áhrif yfirvinnubannið og verkfallið hefur á rekstur Herjólfs fjárhagslega og hvort einhver ákvæði í rekstrarsamningnum herða þumalskrúfu að rekstraraðila í þessum aðstæðum.
Yfirvinnubann þýðir að engin yfirvinna er unnin og það hlýtur að þýða minni launakostanað. �?að ásamt verkfalli á föstudögum þýðir færri ferðir, minni olíukostnað og annan rekstrarkostnað. �?ær fáu ferðir sem farnar eru milli Eyja og �?orlákshafnar, 4 á viku, hljóta því að vera mun betur nýttar en þegar farnar eru 14 ferðir á viku og því gefur það auga leið að þeir hljóta að vera tiltölulega hagkvæmar í rekstri.
Spurningin er því sú hvort að það geti virkilega verið að þegar upp er staðið þá verði rekstur Herjólfs hagkvæmari vegna aðgerða sjómannafélagsins og rekstraraðili Herjólfs, Eimskip, hreinlega hagnist á því fjárhagslega. �?g get ekkert fullyrt um það en það er vert að velta þessari spurningu fyrir sér.
Ef að sú er raunin þá er yfirvinnubanni og verkfalli Sjómannafélagsins beint gegn röngum aðilum, almenningi í Eyjum, í stað þess að þær aðgerðir bíti rekstraraðilann og valdi honum fjárhagslegu tjóni. Ef svo er þá er Sjómannafélagið á rangri leið og mun sennilega �??dingla�?? við að ná samningi við Eimskip fram eftir vori eða aþr til einhver utanaðkomandi heggur á hnútinn.
Getur verið að þetta sé ein af ástæðum þess að ekkert þokast í samkomulagsátt?