70 ár aftur í tímann?
Lesendi Eyjafrétta kom við á ritstjórn í vikunni. Meðferðis hafði hann auglýsingu yfir samgöngur á sjó við Vestmannaeyjar. �?ar segir að siglt sé tvisvar í viku, aðeins tveimur ferðum minna en nú er gert vegna verkfalls undirmanna á Herjólfi. Auglýsing er hins vegar frá 1946 þar sem ferðir mótorbátsins Gísla Johnsen eru auglýstar en báturinn sigldi á miðvikudögum og laugardögum milli Eyja og Stokkseyrar.
�?að má því segja að Eyjamenn séu komnir hátt í 70 ár aftur í tímann þegar kemur að ferðatíðni í samgöngum á sjó. �?að er því kannski ekki skrítið að það sé farið að þykkna verulega í íbúum Vestmannaeyja en verkfallið hefur staðið í þrjár vikur og stefnir ekkert í það að deiluaðilar séu að ná saman.
Gísli Johnsen VE 100 var 32 tonna trébátur en í Sagnheimum má finna líkan af bátnum. �?ar má einnig finna forlátan ælubakka sem notaður var þegar báturinn sigldi milli Eyja og Stokkseyrar.
Tengd frétt:

Nýjustu fréttir

Laskað lið ÍBV tapaði gegn Val
Athugasemd
Dísa leiðir Eyjalistann
Kvenfélagið Líkn færði HSU veglega gjöf
Loðnan tengir saman Vestmannaeyjar og Japan
Listir og menning í Framhaldsskóla Vestmannaeyja
Lestur ársreiknings bæjarins gefur allt aðra mynd
Ísólfur Gylfi – 42 ár frá Helliseyjarslysinu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.