Ritstjórn Eyjafrétta sendi fyrirspurn á alla formenn og varaformenn þingflokka Alþingis í morgun. Fyrirspurnin var eftirfarandi: Hvað mun flokkur þinn gera komi fram tillaga um að setja lög á verkfall undirmanna á Herjólfi?
Ragnheiður Ríkharðsdóttir, formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins sendi eftirfarandi svar: �??�?að er ljóst að alltaf er erfitt að ganga með lögum inn í kjaradeilur en hins vegar geta almannahagsmunir vegið svo þungt að ekki verður hjá því komist. �?essi kjaradeila undirmanna á Herjólfi er farin að hafa gífurleg áhrif á almennt atvinnulíf í Eyjum sem og öryggi íbúa þar og í því ljósi tel ég persónulega rétt að ganga inn í slíka deilu með lögum. Komi slíkt frumvarp fram þá mun hver einn og þingmaður taka sína ákvörðun en ég get ekki betur heyrt en að í mínum hópi að séum við nokkuð samstíga.�??