Alls skrifuðu 2716 undir áskorun til deiluaðila um að ganga til samninga vegna launadeilu undirmanna á Herjólfi. Gísli Hjartarson, sem stóð fyrir undirskriftasöfninni afhenti þær í dag. Á afgreiðslu Herjólfs tóku stelpurnar í miðasölunni við listanum. Auk þess verður þingmönnum sent eftirfarandi bréf:
Ágæti ráðherra/ þingmaður
�?að er orðin landsmönnum öllum mikil þrekraun að komast þjóðveginn okkar til og frá Vestmannaeyjum. Yfirvinnubann undirmanna á Herjólfi, og verkfall á föstudögum, hefur sett athafna- og atvinnulíf Eyjaskeggja í uppnám. �?etta ástand er nú búið að vara lengur en góðu hófi gegnir. �?að þarf eitthvað að gera til að koma hlutunum í eðlilegt horf. Hvaða leið svo sem menn fara til þess þá er það skýlaus krafa að allra leiða sé leitað til lausnar. Hægagngur í þessu hingað til hefur verið með eindæmum og báðir aðilar virðast hamingjusamir með að gera ekki neitt, við það verður ekki lengur unað.
Einangrunin er orðin slík að ferð sem menn gátu farið að morgni til að reka erindi í höfuðborginni, og komið til baka að kvöldi, þó siglt væri til �?orlákshafnar, tekur núna á bilinu 2-4 daga.
�?að er því kominn tími á að ríkisstjórn Íslands og þingheimur allur leggi eitthvað til málana til að koma þessum hlutum á einhverja siglingu, svo Herjólfs ferð verði aftur örugg ferð!!!
Með vinsemd og fyrirfram þökk
Gísli Hjartarson
Kennitala: 010567-3869
.