Verkfall undirmanna á Herjólfi stendur enn og ekkert að frétta af samningamálum þeirra. Margir hafa spurt sjálfan sig og aðra, hvort launadeila Herjólfsmanna við Eimskip eigi rétt á sér á þann hátt að samgöngur við næst stærsta byggðakjarna utan höfuðborgarsvæðsins eigi að geta lamast vegna þeirra, vikum saman. Geta menn séð það fyrir sér að samgöngur milli Íslands og annarra landa lamist í margar vikur vegna launadeilu. Nei, slíkt yrðu aldrei látið viðgangast. En að lama samgöngur við Vestmannaeyjar, er það í lagi?
�?að skal þó tekið fram að Flugfélagið Ernir er að sinna samgöngum við Eyjar eins og þeir hafa getu til og eiga heiður skilinn.
Sá orðrómur hefur gengið að starfsmenn Spalar, sem starfa í gjaldskýlinu við Hvalfjarðargöngin, hafi ekki verkfallsrétt. Eyjafréttir leituðu til Vilhjálms Birgissonar, formanns Verkalýðsfélags Akraness, sem fer með samningamál starfsmanna Spalar og spurðu hann hvað til væri í því. Hann sagði að sá orðrómur eigi ekki við nokkur rök að styðjast. �??Málið er að starfsmenn Spalar eru með svokallaðan fyrirtækjasamning en önnur ákvæði sem ekki er getið í fyrirtækjasamningum gildir kjarasamningurinn á hinum almenna vinnumarkaði eða nánar tilgetið samningur SGS við SA. �?ar inni er verkfallsrétturinn að sjálfsögðu enda er verkfallsréttur einn mikilvægasti réttur sem launafólk á. �?g veit ekki hvernig mönnum datt í hug að starfsmenn Spalar ættu ekki verkfallsrétt.�??