Meðvirkur handritslaus heilbrigðisstarfsmaður bundinn þagnarskyldu
Eitt sinn voru hjón að horfa á danska gamanþáttinn Klovn. Konan hefur þá orð á því hvað Mia sé nú leiðinleg við hann Frank og þetta sé nú ekki nægilega gott fyrir greyið karlinn þar sem hann sé svo seinheppinn. Maðurinn var fljótur að svara og segir , �??nú hún þarf auðvitað að fylgja handritinu!�??.
Í dag er ég farinn að óska þess að einhver rétti mér handrit sem ég get fylgt eins og Mia í gamanþáttunum Klovn. �?ví stundum líður mér eins og ég sé í einhverjum erlendum gamanþætti og enginn skilur það sem er að gerast, kannski vegna þess að það eru ekki til peningar til að setja íslenskan texta ?. Tilfinningin er einnig að áhorf sé lítið. Líkt og þættirnir Klovn sem voru sýndir vikulega að þá eru nánast vikulegar uppákomur hér á Heilbrigðisstofnuninni sem maður veit ekki lengur hvernig á að túlka. Hér eru nokkur dæmi sem tengjast rannsóknarstofunni sem er hluti af Grunnþjónustu:
�?rjú mismunandi blóðrannsóknartæki eru notuð hér á rannsóknarstofunni. Eitt tæki mælir svokallaðan blóðhag, þ.e. blóðrauða, hvít blóðkorn og blóðflögur. �?að er mikilvægt t.d. til að gefa vísbendingar um sýkingar, blæðingar osfrv. �?að tæki sem er núna í notkun er varatæki, því tækið sem var fyrir og er nýrra er bilað.
Annað tæki svokallað �??kemíutæki�?? mælir fjöldan allan af rannsóknum eins og blóðsykur, nýrnaprufur, blóðsölt, lifrarprufur, CRP sem er mikið notað til að gefa vísbendingar um sýkingar eða bólgur, kólesteról, blóðfitur osfrv. �?að tæki er gamalt og er bilað.
�?riðja tækið mælir nokkur hormón, B12 vítamín og TNT sem eru hjartaensím og mjög mikilvægt í greiningu kransæðarsjúkdóma. �?að tæki er bilað og eins og er erum við að borga 1.900 krónur fyrir t.d. skjaldkirtilsmælingu sem annars myndi kosta okkur rúmar 300 krónur að mæla hér. �?etta hefur verið bilað síðan í september 2013.
�?etta er einungis það sem þessi mánudagur bauð uppá og óska ég hér með eftir handriti sem hægt væri að fylgja.
Kær kveðja
Ágúst �?skar Gústafsson, Yfirlæknir heilsugæslu HSV
Eydís �?sk Sigurðardóttir, Framkvæmdarstjóri hjúkrunar HSV

Nýjustu fréttir

Kostnaður við NSL-4 sprengir áætlanir – kominn í 3 milljarða
Óstöðugir flutningar valda vandræðum í Eyjum
Séra Kristján segir upp sem vígslubiskup í Skálholti
Arnar Pétursson valdi leikmannahóp fyrir lokaleiki undankeppni EM
Ófært í Þorlákshöfn – Herjólfur bíður átekta fyrir utan höfnina – uppfært
Veðrið gengur niður
Eyjarnar landa í Þorlákshöfn
Snælduvitlaust veður í Vestmannaeyjum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.