Staldra við varðandi veitingarekstur í Eldheimum
Fyrir nokkru var auglýst eftir rekstraraðila til að sjá um veitingasölu í Eldheimum. Ýmsir veitingamenn bæjarins voru ekki sáttir við þá samkeppni sem þarna yrði með tilstuðlan Vestmannaeyjabæjar. Málið var tekið fyrir á fundi bæjarráðs í gær. Eftirfarandi bókun varð gerð:
�??Bæjarráð fjallaði um mögulegan rekstur veitingaþjónustu í Eldheimum og ábendingar frá veitingamönnum í Eyjum hvað slíkt varðar. Fyrir liggur að frá því að Eldheimar voru hannaðir, hafa fjölmargir veitingastaðir víða um bæ verið opnaðir. Af þeim ástæðum þykir bæjarráði rétt að staldra við áður en opnaður verður fullbúinn veitingastaður þar. Bæjarráð samþykkir því að allri veitingasölu verði mjög svo stillt í hóf og verði nær því sem er til að mynda í �?jóðmenningahúsinu (lítill kaffibar og einfalt meðlæti) og víðar. Eftir sem áður telur bæjarráð mikilvægt að nýta húsnæði Eldheima sem best þannig að það styðji við þá miklu grósku sem er í veitingarekstri og annarri ferðaþjónustu í Vestmannaeyjum. Í því samhengi ber til að mynda að horfa til þess að rými á efri hæðinni sem áður var hugsað sem veitingastaður nýtist einnig sem veislusalur sem allir þjónustuaðilar, sem og bæjarbúar, í Eyjum geta leigt fyrir einstök tækifæri og nýtt til að styðja við sinn rekstur. �??

Nýjustu fréttir

34,8 milljónir í fjárhagsaðstoð í fyrra
Safna fyrir innileikvelli fyrir börn 
85 ára saga Rauða krossins í Eyjum – opið hús í Arnardrangi á sunnudag
Skýr skilaboð frá flokksmönnum 
Framtíðarsýn og grunngildi – Hvert erum við að fara?
Landeyjahöfn – Þurfum öflugt dæluskip
Viljum frekar byggja upp en að rífa niður 
Dæluskipið Álfsnes á Bíldudal
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.